Ég verð svo skapvond þegar ég er lasin að það er bara engu lagi líkt. Svo verður mér svo illt í sálinni þegar ég er búin að vera skapvond að þetta er bara tómt rugl. Kaffið er meira að segja vont á bragðið! Ætli dagurinn fari ekki að mestu leiti í snítingar og horhreinsun. Göfugt starf sem ég á fyrir hendi þar!