Magnaður dagur hjá mér. Byrjaði á að vakna á berri jörðinni, nánast, með poka yfir mér og undir. Síðan er ég búin að fara í tvo rússíbana, grafa eftir gulli, róa á bát, éta rótkill í danskri vegasoppu, skipta á rúminu, hoppa á fimmtán mismunandi trambolínum, renna mér í rennibrautum, vatns og ekki vatns, svæft sæl börn og síðast en ekki síst...... sýnt sundlaugarverði bæði brjóstin á mér í einu! Og svo margt margt fleira reyndar líka.