Stundum get ég allt. Þá flögra inni í mér hamingjufiðrildi. En svo er eins og eitthvað klikki, þau kannski fljúga öll á vegg, og ég verð mesti auli sem jörðina hefur gengið. Alger helvítis aumingi, sem ekkert getur gert af viti og er öllum til ama. Núna er ég einhverstaðar mitt á milli; Auli fullur af áttavilltum hamingjufiðrildum!