Þó það sé geggjað stuð að vera úti á landi með gat á hausnum, er alltaf best heima. Laaaangbest. Seldi landanum skrítnar kökur í dag, engin kvartaði svo að þær hafa ekki verið alslæmar. Fjölskyldan kom svo með mér í hina vinnuna og á leiðinni heim gerðum við samning um það að í fríinu ætlum við ekki að tala hátt, ekki rífast, ekki skammast og ekki vera óvinir. Ef það gengur vel framlengjum við sáttmálan eftir frí.