Veðurfræðingurinn í morgunfréttunum á P1 kallaði veðrið gleðipilluveður. Kannski ættu veðurfræðingar að hafa leyfi til að gefa reseft á geðlif þegar veðrið er vont. Annars er ég bara að komast í jólaskap í öllum þessum gráma. Líklegt að sumarfríið fari í að seta upp jólaseríur. Eitthvað verður maður að gera til að bugast ekki. Undanfarna daga er ég búin að skreyta mig með blómum til að halda í geðheilsuna. Í dag fann ég svo upp á því að setja á mig rosa mikinn varalit. Vona bara að þetta virki.