við sváfum svo vel með bláa gluggatjaldið ( sem var komið upp kl 21:30 í gærkvöldi) að við krakkarnir sváfum yfir okkur. Kannski var það rigningin sem barði rúðuna sem hafði svona róandi áhrif á okkur, það er svo gott að sofa í rigningu. Annars er ég farin að hafa mikinn húmor fyrir þessu veðri. Vitandi það að a.m.k. fimm miljónir manna eru búin að vera með sandalana og bikíníin í viðbragðsstöðu frá því um miðjan maí og veður stofan spáir bara enn meiri vætu og vosbúð.