Það hefur aðeins tvennt markvert gerst í lífinu mínu undanfarið og hvoru tveggja átti sér stað í gær. Magnaður dagur, gærdagurinn. Í fyrsta lagi átti Siggi stórleik í svefnherberginu. Málið er sko, að við erum með þurrkgrind inni í svefnherbergi sem við notum annað slagið. Þegar hún er ekki í notkun er hún á bak við hurðina en í notkun, stendur hún langsum við rúmið og tekur eiginlega allt gólfpláss herbergisins. Eða réttara sagt þangað til í gær. Þá fattaði snillinn hann Siggi að setja grindina þvert upp við veggin og þetta gjörsamlega umbyltir öllum okkar hugmyndum um heiminn.
Og svo í öðru lagi, eignaðist ég páfagaukakúrekaskyrtu í gær. Þetta hljómar kannski eitthvað undarlega "páfagaukakúrekaskyrta" og líklega best að taka það þegar fram að þetta er ekki kúrekaskyrta fyrir páfagauka, enda hef ég ekkert við svoleiðis að gera. Nei, þetta er sko alvöru kúrekaskyrta fyrir konur eins og mig (eða litla karla) með páfagaukum á, tveimur á hvoru brjósti og ég bara vissi hreinlega ekki fyrr en í gær að þetta er það sem mig hefur alltaf vantað. Hver hefði trúað því að Þetta væri svarið við lífsgátunni.
Páfagaukakúrekaskyrta
En út af þessum byltingum vaknaði ég kát og glöð og einstaklega skýr í kollinum í morgun. Nú efast ég ekki um neitt lengur, veit svörin við öllum spurningunum, á bara eftir að koma þeim í orð.....