Af því að það eru tvær vikur í afmælið mitt kemur hér fyrsta uppkast að gjafalista. ( athugið að röðin á listanum er ekki endilega í samræmi við ílöngun!)
1. Saga dagana, eftir laumukærastan minn; Sölva Sveinsson.
2. Camper(s) skór, ekki alveg viss um hvernig, svo það er vissara að hafa mig með í ráðum.
3. Svört alpahúfa.
4. Inniskór, einhverja sem maður svitnar ekki mikið í, eru töff en sígildir þannig að maður geti notað þá helst í tvo vetur.
5.Kápa/úlpa/úlpukápa... er ekki alveg viss, ekki páka samt, kannski réttara að segja bara yfirhöfn og hafa mig með í ráðum.
6. Svartur Flaugelisjakki.
7. Rauður varalitur, ekki eldrautt, ekki dimmrautt, bara nákvæmlega eins rautt og mig vantar.
8. Sólarpúður.
9. Prjónar í öllum númerum.
10. Garn í öllum litum.
11. Prjónauppskriftir sem ég skil, ef þær eru fáanlegar.
12. Siggu Lísu aftur út.
13. Mat, má vera matur til að setja í ískápinn, matarboð, út að borða-boð, ostabakki...
14. Sundbol.
15. A Contrastive Gammar textbook & workbook ( Hjulmand).
16. Kínaskyrtu, veit ekki hvaða lit, vissara að hafa mig með í ráðum.