Þetta er nú ljóta sukkið. Ekki nóg með að ég úði í mig hvítlauk í skjóli hálsbólgu og kvefs, heldur er ég líka farin að staupa mig á víni með sömu hálsbólguna að yfirskini. Krakkarnir fá svo bara ís og popp og Línu Langsokku af því að mamman er svo slæm.........já það er bara gott að vera grasekkja.