Fyrir svona sirka þremur vikum fór ég á fund í skemmtinefd 0.x í Sønderbroskole. Fundurinn varði frá kl 19:00 til 20:00. Þegar ég kom svo heim, eftir að hafa drukkið kaffi hjá nágrannakonunni, kl:20:30 var Arnaldur með sár á kinninni og glóðuraugu á báðum. þau sögðu að hann hafi hlaupið á borðhornið. Í kvöld var svo foreldrafundur hjá dagmömmujúnitinu og þegar ég kom heim af honum lá drengurinn alblóðugur í rúminu sínu með gat á enninu. Núna sögðu þau að hann hefði hoppað á borðhorn ( ekki sama borðið samt).
Ég held svei mér að ég hætti að fara út þegar drengurinn er ekki kominn öruggur í rúmið og pakkaður inn í bómull.