Í gær fékk ég afmælisgjöf alla leið frá ameríku. Það fannst mér alveg rosalega gaman, bæði að pakkinn skildi hafa komið svona langt að og líka var innihaldið frábært. Ég hef einu sinni áður fengið pakka frá ameríku, mikka mús bolla með slökkviliðshjálm á sem hægt var að setja rör í gegnum. En það er langt síðan og bæði bollinn og hatturinn týndur en endalaust saknað.
Ég ætla aldrei að týna nýja dótinu mínu frá ameríku.