Hann er varla farinn út úr dyrunum og strax er hann orðinn svolítið sætari. Enda var hann rakaður, strauaður, greiddur, þrifinn og strokinn. Sjaldan sem þetta hittir svona allt á í einu. Vona bara að Ríkarnir kunni að meta það.
Efir að ég var búin að þrífa allt hátt og lágt í gærkvöldi settist ég barasta niður með saltstangir ( ekki að það skipti einhverju máli) og kláraði söguna sem átti að hreppa annað sætið í keppninni. Held nú samt að hún lendi bara í því þriðja út af tímaskorti. En það er þá bara allt í lagi, verst bara að þetta tekur náttúrulega tíma frá lærdómnum, en ég hlýt að geta keypt mér nokkra klukkutíma fyrir verðlaunapeningana sem ég lofa að nota bara í lærdóm. Orræt.