Húkkitts að ég er ekki lengur veik og fór í skólan í morgun. Ég var nefnilega búin að gleyma að maður á að borga staðfestingargjald fyrir skólaferðalagið fyrir 1. nóv. Ég hefði sko barasta ekkert komist til Manchester hefði ég verið veik í dag. Annars var AG nú frekar aumur í morgun, sérstaklega eftir að hann kannaði hitan á hellunni sem ég var nýbúin að sjóða hafragraut á með lófanum. En hann var voðalega duglegur og hélt hendinni ofaní vatni í næstum tvo tíma og fór svo með blautan þvottapoka í heldinni til Jette. Var meira að segja nokkuð montin af þvottapokanum þegar þangað kom, hann var líka sá eini sem státaði af svoleiðis í dag.