Hvað heitir aftur
Gone with the wind á íslensku?
Eins gott að ég skrópi ekki mikið í skólanum, ég á nefnilega enga námsskrá eða neitt þannig svo ég hef ekki hugmynd hvað gengur á þar í rauninni. Rétt svo veit hvað á að lesa fyrir hvern tíma. Þess vegna kom það mér í opna skjöldu þegar ég kom úr frímínótum í gær og sá ritgerðarefni og skilafrest blasa við mér á töflunni; 1. dec, analyse a sonnet of your choice.......