það er svolítið asnalegt að vera hérna í þessum kosningum. Manni er alls,alls ekki sama, en getur bara ekkert gert. Fékk svolítið óbragð í munnin þegar ég gekk inn í sundhöllina og á stærsta vegg hennar brosti við mér ógeðið hann Andres Fogh (eða hvernig það er nú skrifað). Fór samt og synti í grunnhyggju minni en svo þegar ég kom út gekk ég beina leið inn í "sigurhátíð" Venstre. Það var samt enginn merkilegur kominn, bara fullt af lífvörðum, jakkafataklæddum öryggisvörðum og sjónvarpsfólki. Og svo auðvitað ég með rauð augu, klórþvegið hár og óþekka krakka.