Fékk tölvupóst frá hljóðfræðikennaranum þar sem hann gaf mér upp heimalærdóm fyrir fyrsta tíman. Mikið var það skemmtilegt, verð að reyna að geyma þessa tilfinningu eitthvað fram á vor ef ég skildi verða eitthvað leið á þessu. Svo skoðaði ég eggjaleiðarana mína í sónar, fyrst þann vinstri svo hægri. Það var líka rosa gaman, sá meira að segja egg og mér líður eins og hænu fyrir vikið.