Ég fór ókristilega snemma að sofa í gær, ég hef nefnilega fyrir því heimildir að kristur hafi aldrei farið að sofa klukkan átta, en það gerði ég hins vegar. Svo fékk ÞS einhverja sviðsskrekksmartröð; vaknaði upp við það að hún ætlaði að syngja, en allir voru að hlæja að henni. Þetta fékk svo á móðurina að hún vakti til klukkan eitt í nótt. En samt var ég hin hressasta þegar klukkan hringdi kl. 06:03 og það var bara af gömlum vana sem ég snúsaði smá.
Dagurinn í dag verður helgaður heimilsiverkum af ýmsum toga með örlitlu skóla ívafi....bara örlitlu!