Gærdagurinn átti að vera rosalegur lærudagur en þegar upp var staðið varð hann bara heimsóknardagur. Fyst komu Ingibjörg, Birta og Björn Rafnar í hádegismat/kaffi. Svo þegar ég var búin að lesa eina og hálfa blaðsíðu í Hamletti þá kom Bryndís í kaffi. Ég fattaði reyndar eftir á að ég bauð henni bara einn kaffibolla, kannski var það voðaleg ókurteisi, en þá getur hún bara fengið meira þegar hún kemur til að ná í sígaretturnar sínar. Svo gat ég lesið í hálftíma, náði svo í börnin og við fórum í bananaköku og kaffi há Telmu og kó. Rosa gott og gaman en ég auðvitað allt of uppgefin til að lesa eftir að ég var búin að koma krökkunum í háttin. En koma tímar koma ráð. Kannski ég reyni að særa Sjeikspír fram um helgina og fái hann til að segja mér undan og ofan um Letta beibí.