Heimasíminn minn er dauður, gsm-inn virkar bara innanlands, einn krakki veikur og ég aftur komin með vogrís. Skil það alls ekki, þetta með vogrísinn. Hef aldrei fengið þetta áður en svo er allt í einu er allt vaðandi í þessum kvikyndum í augunum á mér. Ælti þetta sé refsing fyrir að horfa á eitthvað óæskilegt? Extreme makeover kannski?
En hvað er þá þetta með fokking símana? Ég tala sko ekkert mikið í svoleiðis, en finnst óneitanlega betra að það sé hægt að ná í mig. Ó vell, ég tek þessu samt með jafnaðargeði. Kannski smá einangrun sé málið.