Jæja, mér líður svolítið betur núna eftir að hafa borgað 6339,22 danskar krónur í netbankanum. Finnst ég vera voða fullorðin og bera mikla ábyrgð. En fyrr í dag, hins vegar, var ég alveg við að henda kjötbollunum út um allt og kasta mér grenjandi í gólfið. Það rann allt í einu upp fyrir ÞS að Siggi væri fluttur út. Greyið barnið, grét og grét og átti verstu mömmu í heimi. Sagði bara að ég ætti að hringja í hann og segja honum að flytja aftur inn, punktur og basta, bannað að breyta!
Ef allt gæti bara verið svona einfallt; punktur og basta og bannað að breyta og allir standa við sitt og eru bara góðir og góðir.
En ég gaft ekki upp, var pollróleg og kyngdi kettinum sem var í hálsinum, faðmaði og elskaði. Gat ekkert annað. Vonandi verða sárin ekki mjög djúp og gróa fljótt. Fokk hvað það er vandlifað stundum.