Vá , ég fíla þetta sólskin alveg í tætlur. Klukkan rétt níu og sólin skýn svo skært að ég er alveg á barmi þess að fara út að þvo gluggana! Reyndar var ég nokkuð úfin og mygluð þegar ég skreið á lappir en það er ekkert sem húfa og varalitur geta ekki bætt úr. En hvernig er það, vaknar einhver ómyglaður einhvertíma? Það væri svolítið eins og að vakna úr yfirliði, held ég, að rísa bara á fætur, með hárið vel greitt og nýburstaðar tennur og vera rosa hress, klukkan eitthvað snemmt.
Ó well, farin að sleikja sólina og sárin.