Naut þess að sofa útí morgun. Eða bara ekki, vaknaði ofsofin og þung klukkan tíu með grenjandi móral yfir að hafa ekki sprottið á fætur eitthvað fyrr. Andskotans helvíti. Ég verð bara að fara að gera það upp við mig hvort ég
meigi sofa út þegar ég get, hvort ég
eigi að sofa út þegar ég get eða hvort ég ætli að drullast á fætur alla daga klukkan eitthvað ákveðið. Hana.. taktu nú ákvörðun, stelpurassgat, og njóttu þess að vera til í stað þess að pína sjálfa þig á einhverju smáræði!