Ég elska svona daga þegar allt er eins og það á að vera. Maður vaknar aðeins of seint, gleymir að hringja símtalið mikilvæga sem maður átti að hringja. Fer svo í skólan þar sem samnemendurnir hlæja bæði að manni og með manni. Kemur svo heim og leikur úti í garði áður en maður eldar fiskibollur og kartöflumús sem maður endar svo á að henda meirihlutanum af í ruslið eftir að krakkarnir hafa sogið það besta úr því og skoðað það með munninum og spítt svo út úr sér. Á svona dögum er oft rigning og það skiptir eiginlega engu máli þó það spryngi á nýja hjólinu, maður gerir bara við dekkið um kvöldið. Það er svona dagur í dag og mér líður vel.