Í gærkvöldi fór ég með frændan í bíó til að athuga hvort það myndi þagga niður í honum í smá stund. það gerði það svo sannarlega, í smá stund. Svo fór hann aftur að spjalla, búa til hljóð og kveikja á hjólaljósunum og svona, það var voða skemmtilegt þó að myndin væri ekkert spes. Við gerðum um það samkomulag að þegar ég væri orðin gömul kerling færi hann með mig í bíó og gæfi mér stærsta ísinn og risapopp. Það finnst mér vera hið fínasta samkomulag.
Í dag ætlum við svo að kíkja á hafmeyuna og tjilla barasta, held ég svei mér þá. En fyrst þurfum við aðeins að hvíla okkur smá.......