Mikið er gott að sofa aðeins meira en maður þarf. Ekki of mikið samt, bara aðeins. Eftir viku verð ég nýbúin að baka pönnukökur fyrir au per stúlkuna sem verður þá ný komin. En pönnukökur fær hún bara fyrsta daginn, síðan verður hún að gera sér hafragraut og súrmjólk að góðu. Gaman að fá au per til að dröslast með.