Síðasti sögutíminn...... gæti verið titill á lélegri sakamálasögu, en er raunveruleikinn minn í dag.
Á morgun fáum við Steinarr frænda og allir eru voða kátir yfir þeim óvænta glaðningi. Ég held að ég geri bara eins og hún mamma mín sagði mér og byrji ekki að lesa neitt að ráði fyrr en sautjánda mai. Það hlýtur að vita á gott ef maður byrjar að lesa á þjóðhátíðardegi Eika Hauks.