Ég fór í mat til Birgitte í gær. Kunni mér auðvitað ekki hóf frekar en fyrridaginn og át yfir mig og lá svo á meltunni þangað til síðasta lestin fór. Þóttist nú bara nokkuð góð að hafa náð að hlaupa niður á stöð á 14 mín í stað hinna opinberu 21. En ég var ekki alveg eins góð þegar ég gekk í rólegheitum um Nörreport og horði á eftir öllum síuðstu strætóunum sem fóru í áttina heim til mín. Svo tók ég mér stöðu við staur og fór að bíða eftir næsta vagni. Sem auðvitað kom aldrei. Loksins þegar ég fattaði að það væri enginn strætó væntanlegur rauk ég af stað og labbaði heim í nóttinni.