Í gær sá ég svansegg, sveppi og skömmustulegan gráhegra. Ég veit ekki hvað hann skammaðist sín fyrir, en hann þóttist ekki sjá mig og svaraði mér engu þegar ég heilsaði honum. Í dag er ég svo búin að lesa og leggja mig jöfnum höndum. Skrifa svolítið líka og éta súkkulaði. Ætli að úr verði ritgerð einhvertíma?
Nú veit ég ekki hvað ég á af mér að gera...langar mest út að leika, en þori ekki af því að ég Á að vera að læra. En hvort ætli sé betra að fara út að leika eða þykjast vera heima að læra?