Ég fór ekki bara í kvennahlaup í gær, heldur væri nær að segja að ég hafi tekið þátt í nokkurs konar fjölþraut. Hjólaði fyrst fimm km, hljóp því næst fimm, svo hjólaði ég svolítið meira, kannski svona tvo km, skúraði svo á fullu í einn og hálfan tíma og hjólaði svo fimm km heim aftur. Ég var svolítið þreytt en það er ágætt að vera búin að byggja sig upp fyrir djamm næstu þriggja daga. Þetta er svakalegt alveg hreint, ef ég væri ekki svona stabíl bæri ég löngu orðin fyllibytta.