Húshjálpin fór í gærkvöldi. Hennar er strax saknað, ekki af því að ég nenni ekki að vaska upp og þvo þvott heldur af því að það er svo gott að hafa hana.
Við erum búnar að vera svo duglegar að taka til og henda drasli að ég er viss um að ef Feng og Sjúi kæmu í heimsókn seigðu þeir að það eina sem mig vantar til að fullkomna heimilið er lítill gosbrunnur!
Helgin lofar góðu, ÞS kemur á eftir, Einar Óla heimsókn á morgun, grill og sól. Svo þarf ég að fara að finna út úr sumarfríinu mínu svona í rólegheitunum. Það kemur eflaust bara PLÍNG, einn daginn. Jájá sei sei...