Þá kom hann loksins dagurinn sem ég er búin að vera að bíða eftir, ekki-sólar-dagurinn. Hann átti reyndar að vera rigningardagur og ég ætlaði að nota hann í ALLT sem ég þarf að gera heima hjá mér. Enn hef ég ekki komið neinu í verk enda sýnist mér vera að rofa til. Á eftir ætla ég svo að hlaupa um fælleparken með þúsundum kellinga, vá hvað ég hlakka til.