Áðan spurði ég Arnald hvort ég ætti að hlaupa núna eða seinna í dag og hann sagði að ég ætti aldrei að hlaupa meira, að ég væri búin að hlaupa nóg. Það er svolítið freistandi að taka hann á orðinu en ég veit að það er stundum ekki heil brú í því sem hann segir. Ég veit nefnilega að ég er ekki egg!
Svo er ég líka að fara í
Alt for damerne hlaupið á miðvikudag með Ingibjörgu, það væri leiðinlegt að missa af því. En núna verður reynt við evrópumetið í letikasti með atrennu...