Ef einhver hefur haldið að ég hafi farið að skrifa ritgerð um leið og ég kom heim, þá getur sá hinn sami haldið upp á nýtt. Ég er búin að liggja á sófanum og rúminu til skiptis með krimma í hönd og notið þess að gera ekki neitt annað en að lesa.
En nú byrjar skólinn hægt og stígandi, kynningarfundur í dag, partý á morgun og svo kennsla á miðvikudaginn næsta.