Þá er ég búin að fara til Akureyrar, í Varmahlíð, að Reykjum, á Brú, í gegn um Blönduós, Borgarnes. Einnig hef lagt leið mína í Mosfellsdalinn, Laugardalinn og Reykjavík. Ég hef hitt margskonar fólk sem allt á það sameiginlegt að vera einstaklega gott á allan hátt. Í dag er ég þreytt en sæl. Stína er bestust og fyndnust að öllum öðrum ólöstuðum samt. Best að ég fari að elda ýsu úr sjónum fyrir börnin mín.