Frammúrskarandi hugmynd að fara í tjaldútilegu í mesta þrumuveðri sumarsins. Strákarnir sofnuðu áður en það hófst, stelpurnar voru svolítið smeykar, en við Herdís og nokkrir froskar nutum þess í botn. Nú er ég endurnærð af eldingum og illa sofin, en það gerir ekkert til af því að það er alveg að koma helgi.