Ég sef alveg ískyggilega illa þessar næturnar. Er alltaf að vakna og ligg svo andavaka í langan tíma inn á milli. Óþægilegt mjög, finnst mér og ekki það sem ég er vön, ég er vön að geta sofið eins og björn í híði.
Er annars á leið til Akureyrar á næstunni og næ að öllum líkindum líka skírn hjá bróðursyninum nýjasta. þá fæ ég auðvitað smá móral að komast ekki líka í brúðkaupið sem er helgina áður...
En ætla að hætta því fljótlega aftur, það er ekkert gott. Mig langar alveg rosalega mikið í þetta brúðkaup, en ég bara get ekki farið í það. Basta!