Ég sef ekki ein þessa dagana. Litlir fætur, vængir og ranar gæla við mig. Stundum virðast þessar verur gleyma sér í æsingnum og stinga mig. En það er örugglega óvart. Tvent þykir mér merkilegt við þessar næturheimsóknir. Annars vegar staðirnir sem ég er stungin á, en þeir eru vægast sagt erótískir og hins vegar að ég sé aldrei þessi gæludýr. Sama hvað ég reyni, á kvöldin eða á morgnana og jafnvel ef ég vakna á nóttinni, leita ég þeirra án árangurs. Kannski þetta sé heilagur andi sem er að reyna að finna sér leið inn í mig. Hvur veit hvað María þurfti að ganga í gegnum fyrir getnaðinn.