Þrjár ástæður á þriðjudegi til að fara aftur upp í og breiða yfir haus; Mjólkin er súr og þú fattar það ekki fyrr en hún er lent í bollanum þínum og hlaupin í kekki. Vaskurinn er alveg jafn stíflaður og í gærkvöldi þegar þú fórst að sofa, ef ekki meira barasta. Og þegar þú fórst að sofa í gærkvöldi, þá fórstu ekkert að sofa, heldur lást hálfa nóttina og byltir þér þangað til sólin kom upp og þá lagðir þú þig í tvo tíma eða svo.
En ég ætla ekki að nota þessar ástæður. Ég er búin að kaupa nýja mjólk, hringi í vaskaviðgerðarmann á eftir, panta mér bækur á bókó og tek á móti deginum brosandi. Þ.e. ef ég sofna ekki...