Sko, ég veit alveg hvað ég er að gera og hvernig ég á að gera það. Maður bara tekur vatnslásinn í sundur og hreinsar grumsið/stífluna úr honum og skrúfar svo aftur saman og vola...stíflan farin, vaskurinn virkar!
Ég er búin að gera þetta allt en á ennþá stíflaðan eldhúsvask og vatnslás sem lekur að auki. Best að bjóða Óla granna í kvöldkaffi. Við getum kannski haldið fund og rætt þetta eitthvað...