Fyrsti skóladagur. Keypti bækur fyrir 773 krónur. Kaffið hefur lækkað niðurí 3,25 bollinn. Það þýðir að ef ég drekk u.þ.b. 1031 kaffibolla er hef ég fyrir skólabókunum með mismuninum.
Ég drekk reyndar ekki mjög mikið kaffi í skólanum enda er ég þar ekki oft, en gróflega reiknast mér svo til að það taki mig 206 vikur að drekka alla þessa kaffibolla. Ég held ég nenni ekki að vera í KU næstu 3,9 árin svo ég held að ég noti bara yfirdráttinn fyrir bókunum!
Hins vegar er ljóst að ég fer að drekka meira kaffi í skólanum, þetta er kærkomin búbót. Kannski býð ég í næsta kaffiboð í mötuneytinu við Njalsgade...