Ég er að fara í ferðalag á morgun ásamt nágrannakonu minni og börnum okkar. Ég hlakka svakalega til enda á ég ekki von á öðru en að þetta verði stórkostleg ferð. Við ætlum til Lundar að tína epli og gera svo úr þeim chutney. Svo ætlum við að elda mat fyrir læknana sem ætla að lofa okkur að sofa í litla gestahúsinu þeirra. Og það eru kisur og allt og við förum með hraðlest og yfir stóra brú!