Obb bobb obb !!!!
föstudagur, september 29, 2006
|
 
Jæja, eru ekki allir í stuði bara?
Skólaganga mín, nja reyndar ekki gangan sjálf, því hún gengur ágætlega, frekar er það menntunin sem fer fyrir ofan garð og neðan þessa dagana. Ég sit í tímum og rembist við að telja sjálfri mér trú um að þetta sé skemmtilegt og áhugavert. Og það tekur svo mikinn tíma að ég fylgist lítið sem ekkert með því sem fram fer. Og samt virkar þessi heilaþvottur ekki almennilega, því mér finnst bara ekkert skemmtilegt í skólanum. En ég gefst ekki upp, held ótrauð áfram með að reyna að plata sjálfa mig. Sýndarveruleiki og tölvuspil rúla feitt!
Nú þarf ég alvarlega að fara að huga að íbúðakaupum á Íslandi. Eftir níu mánuði verð ég búin með skólann og þarf þá bara að halda eitt sumarfrí, pakka í gám og flytja. Níu mánuðir eru ekki lengi að líða nema þegar maður er með barn í maganum. Og ég er ekki með neitt svoleiðis.
Annars finnst mér ég eiga frekar erfitt með að lifa í núinu. Alltaf eitthvað framundan til að skipuleggja og dreifa huganum með. Á næstunni er sumarbústaðarferð til Vordingborg í haustfríinu og afmælið mitt. Bústaðurin er negldur, en ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera með afmælið. Jú, ég veit að ég ætla að halda veislu, en hvernig og hvar er óráðið og ég nenni ekki að pæla í því. Ég er búin að ráða Ingibjörgu sem coordinator, ætli það sé ekki samhæfill á íslensku. En það kemur í ljós hvernig verður. Jóda, Stína og Lára hér með skora ég á ykkur að koma! Þið getið allar sofið á flatsæng á gólfinu hjá mér.
En nú ætla ég að fara í þvottahúsið og þrífa svo því að í dag kemur Maja Sölkuvinkona í heimsókn og á morgun eru það Birgitte og Gitte sem koma til mín. Og þá þýðir ekkert að hafa allt í skít og drasli. Ó nei, ó nei...
 
Comments:
samhæfill...ha ha ha ha ha ha
 
er þetta ekki flott orð? mérstða!
 
oli s
bara ein spurning=
hvernig heldur maður sumarfrí?
 
Geggjað orð

Ohhhhh mig langar í ammæli:(
 
Ætli maður geri það ekki bara á dönsku; holde sommerferie!
 
....en það er ekkert skorað á mann svo að þá nenni ég bara ekkert að koma hahahhahahhaha
 
piff, þú þarna leyndarmála skjóða...
 
Skrifa ummæli



<< Home

AÐRIR
Vinkona Lára Sverrir Kata Sigga Lísa Regína Lilja Óli Ingibjörg Hel Magga Beta Bróðir Einar Óli Salka
ARCHIVES
01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 07/01/2004 - 08/01/2004 / 08/01/2004 - 09/01/2004 / 09/01/2004 - 10/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 07/01/2005 - 08/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 09/01/2005 - 10/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 / 11/01/2005 - 12/01/2005 / 12/01/2005 - 01/01/2006 / 01/01/2006 - 02/01/2006 / 02/01/2006 - 03/01/2006 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 04/01/2006 - 05/01/2006 / 05/01/2006 - 06/01/2006 / 06/01/2006 - 07/01/2006 / 07/01/2006 - 08/01/2006 / 08/01/2006 - 09/01/2006 / 09/01/2006 - 10/01/2006 / 10/01/2006 - 11/01/2006 / 11/01/2006 - 12/01/2006 / 12/01/2006 - 01/01/2007 / 01/01/2007 - 02/01/2007 / 02/01/2007 - 03/01/2007 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 04/01/2007 - 05/01/2007 / 05/01/2007 - 06/01/2007 / 06/01/2007 - 07/01/2007 / 07/01/2007 - 08/01/2007 / 08/01/2007 - 09/01/2007 / 09/01/2007 - 10/01/2007 / 10/01/2007 - 11/01/2007 / 11/01/2007 - 12/01/2007 / 12/01/2007 - 01/01/2008 / 01/01/2008 - 02/01/2008 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 04/01/2008 - 05/01/2008 / 05/01/2008 - 06/01/2008 / 06/01/2008 - 07/01/2008 / 07/01/2008 - 08/01/2008 / 08/01/2008 - 09/01/2008 / 09/01/2008 - 10/01/2008 / 10/01/2008 - 11/01/2008 / 11/01/2008 - 12/01/2008 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 05/01/2009 - 06/01/2009 / 06/01/2009 - 07/01/2009 / 09/01/2009 - 10/01/2009 /


Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com