Mig dreymdi kóngafólk í nótt, bæði Mary og Joakim. Og við vorum á flótta í einhverri æsispennandi framvindu. Ég veit svo sem hvaðan spennuelimentið kemur, er að lesa mikla spennusögu í augnablikinu, en mér er alveg fyrirmunað að sjá hvers vegna í ósköpunum mig dreymir allt í einu kóngafólk. Þau eru ekki búin að vera í fréttum, ég er ekki búin að vera að spá í hvers vegna þau séu ekki í fréttum, ég hef bara yfir höfuð ekki neitt leitt hugan að þessu hyski lengi. Kannski það sé málið.
Alir þegnar konungs verða að leiða að honum, eða hans fólki, hugan að minnsta kosti einu sinni í mánuði...