Mér er það mikil ánægja að greina frá því að ég er komin í tvær "grúbbur". Loksins er ég að samlagast samfélaginu. Í Þessum grúbbum mun ég svo vinna næstu vikurnar sem mér á án efa eftir að finnast afskaplega skemmtilegt. Ég hreinlega elska hópavinnu og ekki er hún nú verri þegar maður vinnur með dönum, sem allir sem einn eru mjög miklar félagsverur og finnst það vera skylda sín sem manneskjur að segja sína meiningu á öllum hlutum. Og þá meina ég öllum hlutum
..." jeg vil bare lige sige at jeg er helt enig med Heidrun og jeg glæder mig rigtigt meget til at arbejde sammen med alle jer...bla bla"