Það var gaman um helgina. Rosalega gaman meira að segja. Krakkarnir voru frábærir allir sem einn, samferðakonan ómetanleg, gestgjafarnir ljúfir og veitingar miklar og góðar. Heim komum við með sjö krukkur af eplachutneyi og tvö kíló af niðursneiddum eplum. Ef fólk (pabbi) vill smakka þá þarf það að koma í heimsókn, þetta er nefnilega ekki nema tveggja landa chutney svo það er ekki hægt að ferðast meira með það, nema innanlands. En það eru allir velkomnir í heimsókn eins og venjulega. Myndavélin mín var í einhverju óstuði en við sjáum til hvort ekki finnast einhverjar myndir frá þessarri helgi þegar fram líða stundir.
Ástarkveðjur
H