Verð að skaffa mér smærri útgáfu af Joan Collins sundbolnum mínum. Þessi bleiki ljóti gengur ekki þegar ég get átt von á að hitta sæta pabbanum úr leikfiminni hans AG í lauginni. Hann var þarna áðan með dætrum sínum og vini. Sem betur fer stóðu þeir enn fyrir utan þegar ég kom út og sem betur fer var ég í súper fleignum bol og ótrúlega sæt. Hjúkkits!