Mikið skelfilega finn ég til með henni dóttur minni á þessum miklu tímamótum í lífi hennar. Afmælisveislan mikla er á morgun og það eru bara örfáir úr bekknum búnir að boða komu sína. Hjartað mitt er að springa, þetta er svo sárt.
¶ 7:09 f.h.
Comments:
Gangi ykkur vel með afmælið, ég veit að þetta mun allt blessast.
Hvurslags eiginlega dónaskapur er þetta í fólkinu... Ég get sko bara sagt þér það að tilvonandi afmælisgestir hérna í Hlíðunum bíða spenntir eftir að fá tækifæri til að mæta í hennar veislu!!! Annars segi ég það sama og Lauga; ég er viss um að þetta blessast. Þetta eru samt dónar!
árans... ég veit að ísold þrammar búðirnar á íslandi í leit að hinni fullkomnustu gjöf handa vinkonu sinni í dk og er soldið spæld að komast ekki í afmælisveislu.....