Obb bobb obb !!!!
laugardagur, febrúar 10, 2007
|
 
Af því að hún Lilja er að tala um að hann Logi Veigar hendir hlutum út um allt, þá er gaman að geta sagt frá því hér að það eina sem hægt er að gera í málunum er að skammast þar til yfir líkur. Hann Arnaldur minn gerði þetta látlaust, henti öllu sem hann kom höndum yfir, bara eitthvað, annað hvort í okkur eða bara upp í loft. Ég skil ekki enn hvað honum gekk til með þessu.
En núna virðist hann eitthvað vera að lagast.
Stundum er hann voða þegar "þreyttur" á morgnana þegar hann á að vera að klæða sig og einn morguninn þá gat hann ómögulega klætt sig sökum þreytu. Ég hef ekki mikla þolinmæði þegar svona á stendur, veit alveg að hann er full fær um að klæða sig, þó hann þurfi stundum aðstoð við tölur og svoleiðis, sem hann fær auðvitað. Ég var sem sagt albúin að fara með barnið berrassað á leikskólann og ekki á því að gefa mig. Þegar rifrildið var komið á hæsta stig fór ég út, til að kæla mig niður og svo að hann hefði tækifæri á að klæða sig bara í friði, svo gæti ég komið og látið eins og ekkert hefði í skorist, ef því væri að skipta. En því var nú ekki að heilsa. Hann var sko ekki kominn í fötin en í bræði sinni hafði hann fært af borðinu og niður á gólf, tvo kertastjaka, kaffibolla og könnu, ostaskera og blómavasa og lagt stól á hliðina. En hann henti þessu ekki. Hann veit nefnilega að það er bannað að henda hlutum!
 
Comments:
Æ krúttið....friðsamleg mótmæli hjá honum! ...en ég verð löngu orðin gráhærð ef ég þarf að þola þetta í rúm 3 ár í viðbót, ertu ekki lööööngu farið að lita?!!
 
iiiii, ertu klikk, ég hef ekki fundið eitt einasta grátt hár. ( er svo sem ekkert að leita og þau falla örugglega vel inn í músalitinn á hárinu á mér) en þetta var einmitt það sem ég hélt. Ég hélt sko að ég myndi einn daginn fríka út af þessu, en það hefur nú ekki gerst enn...
 
Skrifa ummæli



<< Home

AÐRIR
Vinkona Lára Sverrir Kata Sigga Lísa Regína Lilja Óli Ingibjörg Hel Magga Beta Bróðir Einar Óli Salka
ARCHIVES
01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 07/01/2004 - 08/01/2004 / 08/01/2004 - 09/01/2004 / 09/01/2004 - 10/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 07/01/2005 - 08/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 09/01/2005 - 10/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 / 11/01/2005 - 12/01/2005 / 12/01/2005 - 01/01/2006 / 01/01/2006 - 02/01/2006 / 02/01/2006 - 03/01/2006 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 04/01/2006 - 05/01/2006 / 05/01/2006 - 06/01/2006 / 06/01/2006 - 07/01/2006 / 07/01/2006 - 08/01/2006 / 08/01/2006 - 09/01/2006 / 09/01/2006 - 10/01/2006 / 10/01/2006 - 11/01/2006 / 11/01/2006 - 12/01/2006 / 12/01/2006 - 01/01/2007 / 01/01/2007 - 02/01/2007 / 02/01/2007 - 03/01/2007 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 04/01/2007 - 05/01/2007 / 05/01/2007 - 06/01/2007 / 06/01/2007 - 07/01/2007 / 07/01/2007 - 08/01/2007 / 08/01/2007 - 09/01/2007 / 09/01/2007 - 10/01/2007 / 10/01/2007 - 11/01/2007 / 11/01/2007 - 12/01/2007 / 12/01/2007 - 01/01/2008 / 01/01/2008 - 02/01/2008 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 04/01/2008 - 05/01/2008 / 05/01/2008 - 06/01/2008 / 06/01/2008 - 07/01/2008 / 07/01/2008 - 08/01/2008 / 08/01/2008 - 09/01/2008 / 09/01/2008 - 10/01/2008 / 10/01/2008 - 11/01/2008 / 11/01/2008 - 12/01/2008 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 / 03/01/2009 - 04/01/2009 / 04/01/2009 - 05/01/2009 / 05/01/2009 - 06/01/2009 / 06/01/2009 - 07/01/2009 / 09/01/2009 - 10/01/2009 /


Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com