Í dag eru fimm ár síðan ég fór að leigja þessa íbúð. Skömmu eftir að við fluttum inn datt mælirinn, sem á að senda upplýsingar um hitanotkun til húseigenda, af ofninum í stofunni og hefur síðan þá verið oní skúffu. Núna var ég að fá bréf, þar sem húseigandi segist ekki geta lesið af öllum mælinum mínum og ætlar því að koma í næstu viku til að athuga málið. Kannski að það sé best að fara að draga mælinn fram í dagsljósið og tylla honum á ofninn áður en inspektorinn kemur.
Annars þetta:
- Matur og hreinlætisvörur í febrúar: 2258,50 kr
- Sækja um mastersnám í Lundi
- Þrífa ísskápinn
- Byrja á ritgerð
- Kaupa garn í trefil
- Þrífa ísskápinn ( ef ég skildi gleyma því í fyrstu umferð)