Hér er allt rólegt barasta, enginn æsingur í gangi. Sólin skín, fuglarnir syngja og húsfreyjan syngur með. Loksins búin að ákveða hvernig verkefnið mitt á að líta út, þá er bara eftir að gera það. Og auðvitað snúa sér að næstu tveim. Mikið hlakka ég til eftir tvo mánuði, þá verð ég alveg búin með Kaupmannahafnarháskóla, jibbí kóla.